9.9.2008 | 14:48
Góðir hálsar...
...og danskir menn. Já var í kóngsins Köben 4 daga í síðustu viku og kom heim á sunnudagskvöldið. Ungfrú Selma var með í för og átti sín fyrstu kynni af norrænu samstarfi í NBC. Á fimmtudagskvöld buðu dönsku bændasamtökin til glæsilegs kvöldverðar á veitngahúsinu Páfulginum í Tívolí. Allan föstudaginn var svo fundað í NBC og var aðalefni fundarins loftslagsbreyingar í heiminum og aðlögun landbúnaðar.
En Strikið og FIELDS biðu okkar Selmu. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum með Fields. H&M og Only tóku vel á móti okkur. Verst hvað danska krónan er orðin skuggalega dýr....
. En við fengum okkur falleg föt og spöruðum í mat í staðinn með því að drekka ókeypis ávaxtasafa sem gefinn var í markaðsskyni og borða ostborgara á Burger King!!. Hausttískan í ár stelpur mínar er bara snotur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2008 | 09:42
Húsráð í hallæri...
Er parketið þitt orðið matt? Vantar gljáa á það? Um helgina prófaði ég að setja ólífuolíu í volgt vatn og strjúka með því yfir hreint gólfið. Trúið mér það glansar á eftir, eins og nýtt. Prófaðu og settu árangurssögu í gestabókina mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.8.2008 | 17:23
Áralangt hugsjónastarf...
Í Kattholti hefur frú Sigríður og hennar fólk annast yfirgefna og heimilislausa ketti og fundið mörgum ný heimili. Frábært starf. Í Grænumýri býr nú einn af fyrrverandi skjólstæðingum hennar, hann herra Moli. Það er talið að hann sé gáfðasti og skemmtilegasti köttur í hverfinu og þó víðar væri leitað. Þakkir til Kattolts fyrir gott starf.
![]() |
Hjálpa heimilislausum dýrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2008 | 08:48
Bakþankar hagfræðings
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2008 | 10:11
Bólgumóri í fullu fjöri...
![]() |
Verðbólgan 14,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2008 | 20:39
Bakþankar búfræðings...
Á morgun birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs. Greiningardeild Landsbankans heyrði ég að spái 15% verðbólgu. Milljón króna lán hækkar m 150 þús. kr. á ársgrundvelli. Reikni hver fyrir sig hve lengi hann er að vinna fyrir lánahækkuninni. Er einhver að aðhafast eitthvað út af þessu. Fjölmiðlar velta sér upp úr því hvort eitthvað flugfélag hafi flogið með byssur til Georgíu. Eru þessi flugfélag ekki í bisness og voru þar að auki með tilskilin leyfi. Hver er fréttin? Utanríkisráðherra fær að svara spurningum um efnahagsmál í Kastljósi með hummi og ha.... Lántaka fyrr á árinu hefði verið ríkinu of dýr... á meðan blæðir einstaklingum og atvinnulífi. Hvar ætlar ríkið að hafa skatttekjur þegar fyrirtækin leggja upp laupana og atvinna minnkar...?
Leggið við hlustir kl. 10 á morgun - bíðum spennt eftir nýjustu fréttum af Bólgumóra...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.8.2008 | 16:05
Göngur og réttir

Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2008 | 17:17
Unnum silfurverðlaun ...
![]() |
Töpuðum ekki gullinu heldur unnum silfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2008 | 14:37
Ding, dong....
ja dingdongdingalingaling glymur hér á gluggann hjá mér... Ekkert lát á Latabæjaræðinu.
Annars er þetta búið að vera viðburðaríkur sólarhringur hjá undirritaðri. Í gærmorgun áskotnaðist mér sá heiður að sitja á klukkutíma spjalli við einn þekktasta stjórnmálamann Bretlands Nigel Farage, sem hefur um árabil verið áberandi í hópi þeirra sem gagnrýnt hafa Evrópusambandið. Hann hélt fyrirlestur hér á landi á fimmtudag og Bændasamtökinn áttu hlut í því að fá hann hingað til lands.
En síðan var haldið á Landbúnaðarsýninguna á Gaddstaðaflötum og fékk ég far með félaga Jóni Viðari á spánýju Impresunni hans. Þegar þangað kom stóðu ráðherrar, bændur og gestir og fylgdust með leik Íslendinga og Spánverja - við munum öll muna hvar við vorum stödd þegar sá frækni sigur vannst. Gaman var síðan að ganga um sýninguna og heilsa upp á gesti og sýnendur. Margir komu líka við í bás Bændasamtakanna. Sérstaklega var gaman að sjá dætur Guðna og Önnu Berglindar í Þúfu í Landeyjum sýna kálfana sína og kvígurnar tvær.
En nú er Menningarnótt hafin hér í borginni svo úr nógu er að velja til skemmtunar - þó sjálf sitji ég við að lesa hagfræðibækur....
![]() |
Latabæjarhlaupið hafið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2008 | 10:55
Sætur foli...
Selma og Geisli hafa farið í fyrsta reiðtúrinn saman. Þau tóku sig vel út sjá myndir af þeim í albúminu "Selma og Geisli".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)