17.9.2008 | 13:00
Enn af fréttamati...
Hvenær ætla fjölmiðlar að hætta að lepja lapþunnar skýringar greiningadeildanna á efnahagsstöðunni. Af hverju er ekki talað við óháða aðila eins og hjá Háskólunum, Friðrik hjá Háskólanum í Reykjavík eða sérfræðinga á Hagfræðistofnun. Ef eignir heimilanna jukust um 32% á sama tíma og hlutabréf hækkuðu um 34% að meðaltali á ári (2004-2007) og húsnæðisverð um tugi prósenta, ja þá væri eitthvað skrýtið ef eigninrnar ykjust ekki. En hvað gerist þá þegar eignir heimilanna lækka vegna þessa að helstu eignir þeirra rýrna í verði af markaðsástæðum einum. Jú eignir rýrna en skuldir halda áfram að hækka ... og hækka.... og hækka vegna verðtryggingar og vísitala neysluverðs heldur jú áfram á uppleið meðan krónan er í frjálsu falli. Í efnahagsreikningi heitir þetta að eigið fé rýrni. Ég ætla ekki að selja húsið mitt eða bílinn til að borga skuldirnar en þegar ég tók lán til húsnæðiskaupa reiknaði ég alls ekki með að verðtryggingin ein myndi hækka skuldirnar um milljónir á ári.
![]() |
Staða heimilanna afar góð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2008 | 08:47
Neytendavarsla....
Í verðbólgunni sem nú geysar hækkar vöruverð í verslunum ört. Ég hef hvað eftir annað orðið fyrir því að annað verð en merkt hilluverð, er innheimt á kassa. Ég brýni neytendur til að gefa ekki eftir að að láta leiðrétta svona sem og að bera saman kassastrimla og hilluverð. Aðhald neytenda nú er mjög mikilvægt. Enn meira pirrandi er þó þegar helgartilboð eru merkt á hillum, fram í vikuna á eftir en gilda síðan ekki við kassa. Síðast í gær lét ég leiðrétta slíkt í Melabúðinni, sem annars er mín uppáhaldsverslun því hvergi sem ég þekki til er annað eins vöruúrval á fermetra.
Stöndum þétt saman og snúum bökum saman....
Bloggar | Breytt 18.9.2008 kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2008 | 15:46
Hver er spurningin?
Fyrirtæki sem selja þjónustu við að gera skoðanakannanir eru líka sérfræðingar í að semja spurningar, um hvað er spurt og hvað er ekki spurt.
Er spurt hvort viðkomandi vill ESB - aðild?
Er spurt hvort viðkomandi finnst ástand efnahagsmála óþolandi?
Er boðið upp á aðrar leiðir til lausnar á því? Kannske nýja ríkisstjórn?
Fyrir mér er fréttin engin og vitna ég þar m.a. til viðtals í Fréttablaðinu í dag við sænskan ráðherra sem ítrekar enn og aftur að evru aðild án ESB aðildar sé óraunhæfur möguleiki. Reyndar spyr ráðherrann undir rós hvort nálgun Íslendinga að umræðu um ESB aðild sé ekki á þeim nótum að þeir
vilji fá að plokka kostina út......
![]() |
Meirihluti vill evru hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.9.2008 | 11:33
Er þetta kreppa...?
Gengisvísitalan stendur í 171, 4 þegar þessar línur eru skrifaðar. Fyrirtækin í landinu hækka vörur sínar á hverjum degi til að mæta gengisfalli krónunnar. Ég lét t.d. gera við Oktavíu í síðustu viku fyrir 120 þús. kall. Ostaslaufan í bakaríinu er komin í 220 kr en kostaði 170 kr í fyrravetur ef ég man rétt. Ég sé engin merki um að verðbólga sé á niðurleið í þessu ástandi. Lánin mín eru verðtryggð. Í 15% verðbólgu á ári hækka 10 millj. kr. um 1.500.000 kr. Þetta er fjármálakreppa fyrir venjulegt launafólk sem þarf að framfleyta sér af launum sínum, rekur ekki fyrirtæki til að lauma einkaneyslu inn í sem kostnaði eða selur vinnu sína á svörtum markaði.
Veltan í smásölunni í sumar er án efa að hluta til borin uppi af erlendum ferðamönnum sem allt í einu uppgötvuðu að allt var orðið ódýrt á Íslandi. Sumir slepptu að fara í "Gullna hringinn" og Bláa lónið en skelltu sér í staðinn á útsölur í Kringlunni og fóru hlaðinir pinklum heim á leið.
Krakkar mínir ... þetta bara getur ekki gengið svona
![]() |
Eimskip lækkar um 25% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.9.2008 | 10:04
Styttist í réttirnar...
Jæja þá er ársbið senn á enda, Lilla er búin að banka í mig og bjóða mér í göngur og réttir. Ég hlakka strax til. Það er eitthvað svo sérstakt við það að fara upp í heiðar til að smala saman kindum. Þó það sé bara nokkurra klukkutíma smölun. Í fyrra fékk ég hann Gjafar þeirra Lillu og Péturs lánaðan, hann er alveg ekta hestur í svona verkefni. Ég varð aftur 17 ára að smala á honum Sindra mínum, í huganum. Smalað verður í Húsmúlarétt við Kolviðarhól n.k. laugardag en hingað til hafa Reykvíkingar réttað í Lögbergsrétt. Það er nú eftir að sjá hverngi fólki og fénaði líkar þetta fyrirkomulag.
Af strákunum mínum (Spora, Geisla og Smára) er það að frétta að þeir eru komnir í hausthagana í Stakkhamarsnesinu. Vonandi eru þeir með hana Kviku litlu undir sínum verndarvæng. Þerna er líka með þeim. Hún er fylfull við stóðhestinum Hvessi frá Ásbrú sem er undan Sömbu frá Miðsitju og Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Ekkert smá gengabúnt pilturinn sá. Það verður gaman að hlera eftir hvernig hann kemur út í tamningu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2008 | 16:00
Uxabrjóst og skálastærðir...
Á veitingahúsinu Jómfrúnni í Lækjargötu er á boðstólum stórkostlegt danskt smurbrauð. Sannreyndi það síðast núna í dag. Namm....... Nafnið á einum réttinum vakti þó brosviprur í munnvikum mínum. Uxabrjóst með einhverju völdu meðlæti. Ég hef aldrei heyrt að uxar hafi brjóst
. Hvað skyldi skálastærð hjá meðaluxa vera hehe...
Líklega þýðing á danska orðinu "bryst" sem útleggst frekar sem bringa....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.9.2008 | 10:49
Ég er búfræðingur...
Á salernisaðstöðu á fínum veitingastað standa viðskiptafræðingur,
lögfræðingur og bóndi hlið við hlið og nota pissuskálarnar.
Viðskiptafræðingurinn klárar, rennir upp og byrjar að þvo, eða bókstaflega
skrúbba á sér hendurnar....alveg upp að olnbogum. Notaði síðan um það bil
20 bréf til að þurrka sér. Hann snýr sér að hinum og segir: ' Ég gekk í
Harvard, þar kenndu þeir okkur að vera hreinlegir.'
Lögfræðingurinn kláraði og bleytti fingurgómana, greip eitt bréf og
sagði:' Ég lærði í Princeton, þar kenndu þeir okkur að vera
umhverfisvænir.'
Bóndinn renndi upp og á leiðinni út segir hann:'Ég lærði á Hvanneyri, þar
var okkur kennt að pissa ekki á puttana á okkur'!
11.9.2008 | 08:19
Konur yfir fertugt ...
Eftirfarandi áskotnaðist mér í einhverjum fjölpósti. Njótið vel mér fannst þetta allavega eiga vel við mig
- Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld...
Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru nokkrar ástæður fyrir því: Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertuað hugsa?" Henni gæti ekki verið meira sama. Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn. Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni viðþig í óperunni eða á fínum veitingastað. Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er aðvera ekki metin að verðleikum. Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbrestiþína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær. Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar. Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar: Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum. Hvers vegna? * Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa* * heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!*Bloggar | Breytt 10.9.2008 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2008 | 13:20
Löngu vitað...

![]() |
Bómullarpinnar gera meira ógagn en gagn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.9.2008 | 09:20
Gestrisni og kurteisi...
Gestrisni hefur löngum þótt meðal æðstu dyggða íslenskra heimila. Skammt er þar að minnast rausnarheimilis Laufeyjar ömmu minnar og Bjarna afa, en þar var löngum gestkvæmt. Eins og hún orðaði það í bréfi til Lellu dóttur sinnar (lauslega endursagt eftir minni) "...og þá komu Nonni og Gunna með sín börn, og það var í þrjá daga. Og svo komu Lúlli og Lilla með sín börn, tengdason, ömmu hans og tvo vini og það var um helgina fram á þriðjudag...". Einhvern veginn svona var ágangurinn á því heimili.
Ein helsta dyggð í gestrisni hefur löngum falist í að bera mat, kökur, mat og kaffi fyrir gesti og fá þá til að belgja sig sem mest út af því. En það má ekki ganga út í öfgar. Nýlega heyrði ég sögu af ungum manni sem kom í boð þar sem honum varð á að afþakka hluta veitinganna. Dreif þá að ekki bara gestgjafann heldur og fleira fólk og gekk þar maður undir manns hönd að telja unga manninn af þessari ákvörðun. En gestgjafar verða að samþykkja að gesturinn ýmist þakki eða afþakki veitingar kurteislega hvort sem það er áfengi, sætindi eða fjólubláir tómatar.
Öfgafullt dæmi um þetta er saga sem ég heyrði af fólki sem var nánast vísað á dyr eftir að hafa móðgað gestgjafa með þvi að afþakka veitingar. Gesturin hefur þegið heimboð og sýnt með því gangkvæman áhuga á gestgjafanum. Svo er bara að njóta félagsskaparins. Ekki satt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)