Topp tíu

Spurningin sem lögð er fyrir fræga fólkið í Föstudegi sem fylgir Fréttablaðinu

Tja greinilegt er að verið er að spyrja um efnislega hluti - ég ákvað að spreyta mig ath. ekki er sérstök röð á því sem mér datt í hug og kannske hefði ég nefnt eitthvað annað í gær - eða á morgun.

Hnakkurinn minn - gamall Skagfjörð - marga góða stundina átt í honum

Motorola gellu síminn minn - mörg skemmtileg símtöl verið töluð í hann

Calligaris húsgögnin mín - mikil heimilisprýði

Puma skórnir - mikið búið að ganga á þeim og endurnýja einu sinni með nákvæmlega eins pari

Málverkið af okkur Kviku - uppáhalds æskuminningarnar samankomnar í einni mynd uppi á vegg

Hesturinn Perla eftir Bjöggu frænku - minjagripur um æskuna - gengna kynslóð af ættingjum og Perlu

Cheyenne gallabuxurnar - góðar gallabuxur eru nauðsynlegar

Lopapeysan frá Heiðu frænku - Hvort sem er á fundi í útlöndum eða heima í stofu

Handavinna eftir erfingjana - nokkrir gripir til

Horfnir góðhestar eftir Ásgeir Jónsson - drakk þessa bók í mig hjá ömmu og er Guðbjarti frænda þakklát fyrir að gefa hana eftir og pabba og mömmu fyrir að hugsa til mín með hana


Myndavélapælingar

Mig vantar góða myndavél í vasann fyrir sumarið. Ef einhver á góða ábendingu handa mér er hún vel þegin. Þarf að vera góð til að taka myndir af hestum, krökkum og myndirnar í upplausn sem er brúkleg til að nota í bæklinga eða til birtingar á prenti. Látið nú góð ráð ekki liggja ónotuð undir rifjum ykkar!

Lifað um efni fram...

Allt bendir til að við höfum lifað um efni fram undanfarin ár, lagt í óhóflegar lántökur til að fjárfesta í okkar innviðum og atvinnulífi í stað þess að byggja meira á innlendum sparnaði. Afleiðingin er viðvarandi viðskiptahalli, og þegar á reynir gengislækkun og svimandi háir vextir. Það er augljóst að margt hefur mátt betur fara við stjórn efnahagsmála hér á landi síðustu ár. Ég hef baslað við að kenna námsgrein sem heitir "Stjórn búrekstrar" við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri sl. 3 ár. Þar er meðal annars fjallað um fjármögnun fyrirtækja. Fjármögnun verður að byggjast ekki bara á lántökum heldur líka innri fjármögnun, hefur okkar efnahagskerfi ekki flaskað á því?
mbl.is „Lengt í hengingaról Íslendinga"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki hissa...

Bretland er stórt land og fjölmennt með mikil tengsl við önnur lönd samveldisins og fyrrum nýlendur. Margir bretar eru upprunnir í þessum löndum. Bretland er svo auðvitað í ESB sem fylgja mikil tengsl við önnur lönd þar á bæ. Það kemur því ekki sérstaklega á óvart að þeir viti lítið um Ísland.


mbl.is Margir Bretar vita ekki að Ísland er í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sauðburður og sólskin

Veðrið leikur aldeilis við okkur þessa dagana. Í gær fórum við Selma norður í Húnavatnssýslu, nánar tiltekið hún að Akri til Jóhönnu og ég á fund á Blönduósi um matvælafrumvarpið svokallað. Selma fór að sjálfsögðu í fjárhúsin með Helgu og var harla ánægð með heimsóknina, hlýjar móttökur eins og alltaf á Akri. Hún sá fullt af lömbum og skellti sér í morgunn i skólann í peysunni með kindalyktinni Cool.

Fundurinn á Blönduósi var afar vel sóttur svona um hábjargræðistímann hjá sauðfjárbændum, um 40 manns. Það er alltaf gaman að fara í svona ferðir og ræða mál sem varða miklu. Það er grundvallarbreyting ef leyfa á innflutning á fersku kjöti, hráum eggjum og ógerilsneyddri mjólk og t.d. ostum úr ógerilsneyddri mjólk, til Íslands. Vilhjálmur Svansson dýralæknir og veirufræðingur flutti fróðlegt erindi um sjúkdómastöðu og þá áhættu sem slíkum innflutningi getur fylgt og nefndi dæmi um tjón sem hlotist hefur af þegar skæðir búfjársjúkdómar hafa komið upp í nágrannalöndunum í tengslum við hrámeti. Eitt svona slys gæti t.d. gert útaf við íslenska geitastofninn.

En góða veðrið "lemur" ákaft á gluggann núna - ég held að það endi með hesthúsferð seinnipartinn Wink


Grundirnar gróa...

Bensínverðið hefur eitthvað misskilið vorið, það hækkar held ég hraðar en grasið sprettur þessa dagana. Mér finnst alltaf komið nýtt verð á bensínstöðvunum á hverjum morgni þessa dagana. Virkar þetta ekki eins og vaxtahækkun hjá Seðlabankanum? Woundering
mbl.is Olíuverð setur nýtt met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan sveiflar sér í rólunni...

Já, hún dansar upp og niður blessuð krónan. Ég fórnaði svissnessku frönkunum í dag og breytti í krónur, vogun vinnur - vogun tapar.

En svo bíður maður með öndina í hálsinum eftir hvað Seðlabankinn gerir á næsta vaxtaákvörðunardegi. Verða þeir búinir að skilja að stór hluti verðbólgunnar er innfluttur og af orsökum sem hvorki Seðlabankinn eða við almúginn fáum neinum um breytt. 

Þetta ástand saxar hratt á kaupmáttinn á þessum krónum sem koma mánaðarlega í launaumslagið hjá okkur sauðsvörtum...


mbl.is Krónan og hlutabréf hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herðavír og löng letihelgi...

Hvítasunnuhelgin er alltaf ein besta slökunarhelgi ársins. Samt má alltaf nota hana til að koma ýmsu smálegu í verk. Stóri-Moli skellti bóni á bílinn minn í gærkvöldi og nú glansar hann á margra kílómetrafæri. Oktavía er alsæl Smile.

Í morgun fékk ég svo þá snjöllu hugmynd að taka til á pallinum - auðvitað samt ekki fyrr en á morgun - en þá upplýstist að Sorpa er lokuð á morgun. Halló... það eru örugglega margir sem hefðu viljað nota þjónustu Sorpu á morgun og taka til í kringum sig. Þetta minnti mig á að ég hef oft velt fyrir mér hvort einhversstaðar sé móttökustöð fyrir vírherðatrén sem föt hanga á þegar þau koma úr hreinsun. (Vírherðatré er auðvitað vonlaust orð og herðavír er eðlileg afleiðing af orðinu herðatré sem notað er um þetta húsgang úr tré) Mér finnst það fáránleg sóun að henda þeim, þegar Lella frænka var með efnalaugina í Borgarnesi var hægt að koma herðavírnum til hennar í endurnýtingu. En hvert get ég skilað herðavírnum núna?


Fjarskanaistan...

Það er algerlega ofvaxið mínum skilningi hvernig herforingjastjórnin í Burma tekur á afleiðingum náttúruhamfaranna fyrir viku. Enn ein áminning til okkar hér á ískalda skerinu um hve gott við höfum það, svo gott að við trúum ekki að nokkuð geti komið fyrir, allt muni jú allavega reddast.

Í þessum fréttaflutningi af Burma, Tíbet og stundum Nepal, verður mér hins vegar oft hugsað til lítils fjallalands á þessu sama svæði sem heitir Buthan. Þar ríkir friðsæld og landið því aldrei í fréttum. Þegar ég var við nám í Wales (fyrir fleiri árum en ég kæri mig um að rifja upp) var þar námsmaður frá Buthan að læra jarðrækt. Very peaceful - var lýsing hans á landinu sínu.

Mér dettur Buthan oft í hug þegar fólk talar um "Fjarskanistan".
mbl.is SÞ stöðva flutning hjálpargagna til Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður fimmtudagur ...

Fimmtudagurinn 8. maí er fyrsti afmælisdagur Finnbjarnar frænda. Til hamingju með daginn frændi. Dagurinn var einstakur góðviðrisdagur, hitamælirinn í bílnum sýndi 15 stig. Ég hitti eldri erfingjann heima í hádeginu sem tilkynnti mér að vörubílstjórar þeyttu lúðra sína fyrir framan Alþingishúsið. Þeir væru með því að trufla EmmErringa í vorprófunum, tillitsleysið algert. Mamma eigum við ekki bara að fara að mótmæla háu verði á hestakögglum!!

Seinni partinn fórum við Selma, ég, Herra Þytur og Spori í reiðtúr upp að Hafravatni. Ekki amalegt í vorblíðunni. Í kvöld verður svo Vorblót sundfélagsins Grettis haldið í Hafnarfirði. Þar verð ég í hlutverki smástelpunnar því félagsmenn aðrir eru minnst 10 árum eldri en ég, en félagsandinn er frábær.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband