Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
1.6.2008 | 21:33
Tyllidagar og slökun...
Í gær var "fullkominn dagur" hjá Ragnari frænda mínum og hans fjölskyldu, Kristínu Gróu og syninum Ríkhard Skorra. Þau létu pússa sig saman í Grafarvogskirkju að viðstöddum vinum og ættingjum. Líklega eru skemmtilegustu ferðir sem maður fer í kirkju, þær sem farnar eru til að vera við brúðkaup. Allir eru mættir af frjálsum vilja til að samgleðjast og þeir sem athöfnin snýst um hafa mikið um alla umgjörð að segja. Presturinn hún Lena Rós Matthíasdóttir setti sinn svip á athöfnina sem og Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða) sem söng einsöng. Í stað brúðarmarsins var leikið á flautu lagið við vísur Vatnsenda-Rósu, Augun mín og augun þín, þegar brúðhjónin gengu inn kirkjugólfið. Sérlega vel til fundið. Á eftir var herleg veisla með mat og drykk. Selma fór með mér en Linda var þvi miður lasin heima.
En ekki gafst tími til að sitja veisluna á enda því búið var að blása til afmælisveislu í Grænmumýri um kvöldið. Fröken Selma hafði hóað saman "krúinu" til að fagna 13 ára afmælinu 1. júní. Til hamingju skvísa, orðin táningur....
Í dag hafa svo verið rólegheit - gamla brýnið fór í sund, það er alltaf slakandi og nærandi. Með hinni hendinni er búið að láta þvottavélina og þurrkarann snúast nokkra hringi, allt þarf að vera í standi því húsmóðirin er að taka sig saman og pakka í tösku fyrir Póllandsferð. Þangað verður farið í býtið á þriðjudagsmorgun á aðalfund IFAP, alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda. Hver veit nema takast megi að setja eitthvað á bloggið þaðan, allavega er spennandi að komast að hvernig pólskt þjóðfélag gengur fyrir sig.
23.4.2008 | 13:01
Meiri heilsan...
Annan daginn í röð ligg ég inni í bóli borin ofurliði af kvefpest einhverri. Vorið kallar þó áfram. Sé að Suðurlandsvegur er lokaður við Rauðavatn, Fjárborg í herkví semsagt. Smári hefur verið útskrifaður af "upptökuheimilinu". Hann er víst hættur að prjóna og orðinn efni í keppnishest . Hann verður sendur í næstu sveit í framhaldinu, ráðinn í hólmaferðir og fjöruskoðun á Stakkhamri. Pabbi ætlar að sækja hann á morgun.
Sumardagurinn fyrsti bíður svo á morgun. Alltaf gaman að fá einn frídag til að fagna vorinu. Hann má nota til útreiða, grilla eða bara hvað sem er jafnvel taka til á pallinum. Best að skjóta í sig slatta af panodil og sjá hvort upplitið hressist ekki.
7.3.2008 | 17:09
Hesthússkróp...
Jæja þá búnaðarþingið afstaðið. Alltaf gaman meðan á því stendur en gaman líka þegar það er búið.... þá er hægt að byrja að hlakka til þangað til næst. Mikið manna- og kvennaval var á þinginu eins og endranær.
En nú er komið að því að taka sig á í öðru sem þarf að gera. Heimilið bíður með bunka af verkefnum og Þytur og Spori standa langleitir uppi í hesthúsi og bíða þess að spretta úr spori. Þeir eru þó ennlangleitari í dag en venjulega því Bjöggi dýralæknir mætti með "fægilöginn" sinn í morgun og var víst nóg að hreinsa hjá þeim strákunum Vonandi taka veðurguðirnir sig nú saman í skýjunum og láta stytta upp á morgun.
Vinir og fjölskylda | Breytt 8.3.2008 kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)