Meiri heilsan...

Annan daginn í röð ligg ég inni í bóli borin ofurliði af kvefpest einhverri. Vorið kallar þó áfram. Sé að Suðurlandsvegur er lokaður við Rauðavatn, Fjárborg í herkví semsagt. Smári hefur verið útskrifaður af "upptökuheimilinu". Hann er víst hættur að prjóna og orðinn efni í keppnishest Wink. Hann verður sendur í næstu sveit í framhaldinu, ráðinn í hólmaferðir og fjöruskoðun á Stakkhamri. Pabbi ætlar að sækja hann á morgun.

Sumardagurinn fyrsti bíður svo á morgun. Alltaf gaman að fá einn frídag til að fagna vorinu. Hann má nota til útreiða, grilla eða bara hvað sem er jafnvel taka til á pallinumWoundering. Best að skjóta í sig slatta af panodil og sjá hvort upplitið hressist ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband