Bakþankar hagfræðings

Í gær naut ég þeirrar ánægju að vera í hlutverki gestgjafa f.h. vinnuveitanda míns. Hjörtur eldaði hefðbundið sunnudagslæri með brúnni sósu, Tjörvi tók á móti fólkinu og Selma mín spjallaði við krakkana. Gestirnir voru grænlenskir bændur og fjölskyldur þeirra. Þarna voru þrjár kynslóðir saman á ferð, sá yngsti nokkurra mánaða. Set nokkrar myndir inn á eftir. Mikið var spjallað um landbúnað á Grænlandi og Íslandi. Helsta vandamál sauðfjárbænda þar er E-coli sýking á sauðburði. Þá vantar mjög hjálp við að greina það vandamál og kveða niður. Þegar grænlenskir bændur rækta land gera þeir samning við landsstjórnina um að fá það lánað til ræktunar. Enginn á landið og nýr bóndi þarf því ekki að kaupa land né börn af foreldrum þegar þau taka við búi. Áður en kvöldið var úti hafði Selma eignast pennavinkonu á Grænlandi. Grænlenskir bændur eiga margir íslenska hesta og nýja vinkonana sem er á sama aldri og Selma var sjálf að þjálfa eigin hest í fyrravetur, hryssu sem heitir Hekla. Við erum mjög spenntar fyrir að rækta þessi nýju tengsl.

Bólgumóri í fullu fjöri...

Það lá að eins og kallinn sagði. Já hvernig látum við bjóða okkur þetta, stjórnmálamenn komast upp með að þurfa ekki að ræða þetta í neinni alvöru vikum saman. Ríkissjóður á nú að taka á sig byrðar fyrir almenning og styrkja innviði efnahagslífsins með því að taka lán til að auka gjaldeyrisforðann og þó fyrr hefði verið.
mbl.is Verðbólgan 14,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bakþankar búfræðings...

Á morgun birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs. Greiningardeild Landsbankans heyrði ég að spái 15% verðbólgu. Milljón króna lán hækkar m 150 þús. kr. á ársgrundvelli. Reikni hver fyrir sig hve lengi hann er að vinna fyrir lánahækkuninni. Er einhver að aðhafast eitthvað út af þessu. Fjölmiðlar velta sér upp úr því hvort eitthvað flugfélag hafi flogið með byssur til Georgíu. Eru þessi flugfélag ekki í bisness og voru þar að auki með tilskilin leyfi. Hver er fréttin? Utanríkisráðherra fær að svara spurningum um efnahagsmál í Kastljósi með hummi og ha.... Lántaka fyrr á árinu hefði verið ríkinu of dýr... á meðan blæðir einstaklingum og atvinnulífi. Hvar ætlar ríkið að hafa skatttekjur þegar fyrirtækin leggja upp laupana og atvinna minnkar...?

Leggið við hlustir kl. 10 á morgun - bíðum spennt eftir nýjustu fréttum af Bólgumóra...


Göngur og réttir

Nú líður að því að fé og hross fari að koma af fjalli. Húsmúlarétt v/Kolviðarhól í Landnámi Ingólfs verður þann 20. sept. Laufskálarétt verður laugardaginn 27. september og Víðidagstungurétt þann 4. október. Annars er lista yfir réttir að finna í nýjasta Bændablaði. Sjálf fór ég í smalamennsku með Reykvíkingum í fyrra í aldeilis húðarrigningu og kulda. Er búin að senda himnaföðrunum bón um að vera ekki endilega að skvetta svo svakalega úr skinnsokknum á réttardaginn núna og Lillu og Pétri meldingu um að ég gæti hugsað mér að endurtaka leikinn...Wink

Unnum silfurverðlaun ...

á Ólympíuleikum í flokkaíþrótt. Meira þarf vart að segja. Stórkostlegur árangur.
mbl.is Töpuðum ekki gullinu heldur unnum silfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ding, dong....

ja dingdongdingalingaling glymur hér á gluggann hjá mér... Ekkert lát á Latabæjaræðinu.

Annars er þetta búið að vera viðburðaríkur sólarhringur hjá undirritaðri. Í gærmorgun áskotnaðist mér sá heiður að sitja á klukkutíma spjalli við einn þekktasta stjórnmálamann Bretlands Nigel Farage, sem hefur um árabil verið áberandi í hópi þeirra sem gagnrýnt hafa Evrópusambandið. Hann hélt fyrirlestur hér á landi á fimmtudag og Bændasamtökinn áttu hlut í því að fá hann hingað til lands.

En síðan var haldið á Landbúnaðarsýninguna á Gaddstaðaflötum og fékk ég far með félaga Jóni Viðari á spánýju Impresunni hans. Þegar þangað kom stóðu ráðherrar, bændur og gestir og fylgdust með leik Íslendinga og Spánverja - við munum öll muna hvar við vorum stödd þegar sá frækni sigur vannst. Gaman var síðan að ganga um sýninguna og heilsa upp á gesti og sýnendur. Margir komu líka við í bás Bændasamtakanna. Sérstaklega var gaman að sjá dætur Guðna og Önnu Berglindar í Þúfu í Landeyjum sýna kálfana sína og kvígurnar tvær.

En nú er Menningarnótt hafin hér í borginni svo úr nógu er að velja til skemmtunar - þó sjálf sitji ég við að lesa hagfræðibækur....GetLost


mbl.is Latabæjarhlaupið hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sætur foli...

Selma og Geisli hafa farið í fyrsta reiðtúrinn saman. Þau tóku sig vel út sjá myndir af þeim í albúminu "Selma og Geisli".


Hva....! Spenna í sambandið ??

Er það ekki bara nauðsynlegt krydd í öll góð sambönd....Shocking
mbl.is Hleypir spennu í sambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvistagöt margra nota...

LoL Þetta minnir óneitanlega á starfsmann BYKO sem seldi öll kvistagötin af lagernum í rassgöt á rugguhestum....
mbl.is Ýmislegt reynt til þess að fá fullnægingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já spáðu í þetta...

Eigum við ekki eftir að rannasaka svo ótalmargt um mannkynið okkur sjálf. Allt fikt við hormónastarfsemina hlýtur að þurfa að gera með varúð. Það er semsagt ekkert skrýtið við það að við stelpurnar vitum ekki okkar rjúkandi ráð þegar við hættum á pilluni til að fjölga mannkyninu og skiljum þá ekkert í hvaða gæja við höfum tekið á löpp....Halo


mbl.is Hr. Rangur valinn vegna pillunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband