25.8.2008 | 16:05
Göngur og réttir
Nú líður að því að fé og hross fari að koma af fjalli. Húsmúlarétt v/Kolviðarhól í Landnámi Ingólfs verður þann 20. sept. Laufskálarétt verður laugardaginn 27. september og Víðidagstungurétt þann 4. október. Annars er lista yfir réttir að finna í nýjasta Bændablaði. Sjálf fór ég í smalamennsku með Reykvíkingum í fyrra í aldeilis húðarrigningu og kulda. Er búin að senda himnaföðrunum bón um að vera ekki endilega að skvetta svo svakalega úr skinnsokknum á réttardaginn núna og Lillu og Pétri meldingu um að ég gæti hugsað mér að endurtaka leikinn...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.