Herðavír og löng letihelgi...

Hvítasunnuhelgin er alltaf ein besta slökunarhelgi ársins. Samt má alltaf nota hana til að koma ýmsu smálegu í verk. Stóri-Moli skellti bóni á bílinn minn í gærkvöldi og nú glansar hann á margra kílómetrafæri. Oktavía er alsæl Smile.

Í morgun fékk ég svo þá snjöllu hugmynd að taka til á pallinum - auðvitað samt ekki fyrr en á morgun - en þá upplýstist að Sorpa er lokuð á morgun. Halló... það eru örugglega margir sem hefðu viljað nota þjónustu Sorpu á morgun og taka til í kringum sig. Þetta minnti mig á að ég hef oft velt fyrir mér hvort einhversstaðar sé móttökustöð fyrir vírherðatrén sem föt hanga á þegar þau koma úr hreinsun. (Vírherðatré er auðvitað vonlaust orð og herðavír er eðlileg afleiðing af orðinu herðatré sem notað er um þetta húsgang úr tré) Mér finnst það fáránleg sóun að henda þeim, þegar Lella frænka var með efnalaugina í Borgarnesi var hægt að koma herðavírnum til hennar í endurnýtingu. En hvert get ég skilað herðavírnum núna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já vegir opnunartíma Sorpu eru órannsakanlegir. Við höfum skilað vírherðatrjánum í Hreint og klárt, væntanlega eru fleiri efnalaugar sem taka á móti svoleiðis. Um að gera að fara vel með umhverfið og nýta alla hluti í botn. Ég nota t.d. kaffikorg til að varna sniglum aðgangi að salatræktinni. Þá sáldrar maður svona rönd í kringum plönturnar eða sitt hvoru megin ef maður sáir í raðir. Sniglarnir komast ekki yfir svona hindrun:)

Ásdís (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband