Hesthússkróp...

Jæja þá búnaðarþingið afstaðið. Alltaf gaman meðan á því stendur en gaman líka þegar það er búið.... Winkþá er hægt að byrja að hlakka til þangað til næst. Mikið manna- og kvennaval var á þinginu eins og endranær.

 

En nú er komið að því að taka sig á í öðru sem þarf að gera. Heimilið bíður með bunka af verkefnum og Þytur og Spori standa langleitir uppi í hesthúsi og bíða þess að spretta úr spori. Þeir eru þó ennlangleitari í dag en venjulega því Bjöggi dýralæknir mætti með "fægilöginn" sinn í morgun og var víst nóg að hreinsa hjá þeim strákunum Woundering Vonandi taka veðurguðirnir sig nú saman í skýjunum og láta stytta upp á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband