Umsátursástand í no 22

Mér var að berast svohljóðandi sms:

Það er umsátursástand í no 22. Frú Birta hefur eignast eldheitan aðdáanda, rauðhærðan riddara sem liggur á gluggunum og gægist inn.LoL Núna hefur hann komið sér makindalega fyrir á borðinu á pallinum og sólar sig. Sú gamla lemur hann og hvæsir en hann fílar það greinilega og lætur sig ekki. Hann er alveg milljón.

 

kveðja

Inga frænka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara að húsfreyjan í Grænumýri fara ekki að taka upp sömu iðju og Birta,og fara að klóra næturgestinn sinn hahahahaah

Galdrakallinn (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 18:06

2 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

það sleppur............næturgesturinn er ekki rauðhærður

Erna Bjarnadóttir, 5.3.2008 kl. 21:06

3 identicon

Ekkert hefur sést til riddarans hugrakka í dag, enda ekki ketti út sigandi sökum hundslappadrífu. Sú gamla er samt á vaktinni og fylgist með hverri hreifingu utan stofugluggans. Er ekki frá því hún sé að bíða og spenntari fyrir drengnum en hún lætur í ljós. Mér finnst nú samt full mikill aldursmunur.......................

Inga frænka (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband