17.1.2008 | 20:26
Gamla Brýnið í loftfimleikum...
Við Linda skruppum á bak seinni partinn í dag. Geisli var með í tamningatúr hjá Hrafnhildi, Linda á Spora og ég tók skeifnasprettinn á Garðari. Það var nokkur snjór yfir reiðgötunum og fórum við fyrst eftir veginum en tókum svo hring heim. Hestarnir brugðu á valhopp upp smá brekku og....úps....Garðar rann til og missti fótanna. Um hríð háðum við harða baráttu við að ná vopnum okkar, hann að komast á fjóra fætur og ég að halda mér á baki. Leiðin lá fram á makka, út á hlið og enn tolldi Gamla brýnið þar til Garðar loksins náði jafnvægi, þá sá ég þann kost vænstan eins og Aðalbert í "Kátir krakkar á hestbaki" hér um árið.... ég steig af baki. kom þó standandi niður. Ég held að Garðari hafi brugðið heldur meira en mér. Ungu stúlkurnar sáu þarna hinsvegar tilþrif hjá Gamla brýninu sem þær gætu sjálfar verið stoltar af...

Athugasemdir
Já okkur þótti þetta nú heldur betur lipurt hjá þeirri gömlu!
Þú hefur ekki lagt í umræðuefni bíltúrsins. Annars þykja mér fíkjublöð ekki ýkja áhugaverð. Hefði sjálf sagt nakin!:D
Linda (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 23:08
Ég er svo veik fyrir áskorunum Linda, umræðuefni bíltúrsins verður að komast á bloggið. Nei fíkjublöð eru nú ekki áhugaverður klæðnaður, satt segirðu, sérstaklega um miðjan janúar á Íslandi
Erna Bjarnadóttir, 19.1.2008 kl. 10:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.