ja ... maður verður að hafa gaman

Jæja loksins tókst að koma mynd af Stúfi á síðuna. Þessi verður að duga til næstu jóla því hann er komin á vetrarstöðvarnar.

Hér úr Mýrinni er annars helst að frétta að Fröken Linda byrjaði í ökutímum í vikunni. Gengur bara vel hjá henni enda búin að sitja í framsætinu hjá mér nokkrum sinnum og sjá bæði hvernig og hvernig ekki á að stjórna bifreið. Áhugi á bílum og akstri er reyndar útbreiddur á heimilinu. Selma er löngu farin að hugsa um bíla og bílpróf og Mola finnst voða spennandi að fara í bíltúr. Seinast í kvöld skrapp hann með mér að skutla erfingjunum út og suður (ég tel mig eiga inni akstur hjá þeim í nudd og fótsnyrtingu langt fram á tíræðisaldur). Hann var bæði spenntur að horfa út og fylgjast með því sem fyrir augu bar en líka mjög rólegur og góður. Fyndið þegar Selma fór, seinust úr bílnum, þá teygði hann sig upp á hliðarrúðuna eins og til að vinka henni bless. Verst að Örn tekur hann sennilega ekki í ökutíma, því annars hefðum við skötuhjúin getað skiptst á að keyra þegar fram líða stundir, ég þegar hann fær sér í klærnar og hann þegar ég fá mér í tánnaGetLost.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband