9.1.2008 | 19:31
...að verða 007 stúlka
Ég hef lengi litið á 007 sem karlmennskuna holdi klædda, fyrst og fremst af því að dökkhærðir alvöru töffarar hafa leikið kappan, seinast Pierce Brosnan. Það runnu því hálfpartinn á mig tvær grímur þegar 007 varð allt í einu ljóshærður með Daniel Craig. En Daniel er hinn mesti sjarmör, ég tók gleði mína aftur og setti markið ótrauð á að hreppa hlutverk 007 stúlkunnar í næstu mynd. Þetta hef ég reyndar lengi undirbúið, heimasíminn endar á 007, sömu tölustafi er að finna í farsímanúmerinu mínu og ég hef kynnt mér vopnaburð með því að bera gervigæsirnar hans Tjörva fóstbróður míns í einni veiðiferðinni. Eðlilegt framhald af ákvörðun minni nú var að herða sundtökin og fjölga mætingum í Vesturbæjarlaugina til að koma mér í form. Það lá þó við að ég beitti bardagatækninni sem ég hef tileinkað mér á vigtina í kvennklefanum nú eftir áramótin þegar hún sýndi áður óþekktar tölur. Sem betur fer varð skapstyrkur minn yfirsterkari enda frétti ég síðar hjá Kristínu nágrannakonu minn (sem hefur stundað laugina lengur en ég) að þessi vigt sé ævinlega biluð fyrstu dagana í janúar. Jæja mér stórlétti en þó ekki lengi því síðast í dag las ég í mogganum að úkranínskt ofurkvendi hefði hreppt hnossið í næstu 007 mynd. Jæja ég tók þó enn aftur gleði mína því í tölvupóstinum mínum liggur boð um að koma fram í annarri kvikmynd og varð ég fljót að þiggja það í ljósi þessarar nýju stöðu (nánari fréttir af því síðar).
En þar sem ég hef gaman af sundi og ekki síður sundlaugamenningu okkar íslendina held ég ótrauð áfram að mæta í laugina. Hvar annarsstaðar en á Íslandi fer maður í sturtu með ráðherrum, syndir með keppnisfólki, klofar yfir börn á leiðinni í heita pottinn og spjallar síðan þar um menn og málefni. Síðast í kvöld stakk hvítfext genabúnt sér í laugina á eftir mér (veit að Jóhanna á Akri skilur þennan) svo félagsskapurinn er fjölbreyttur .
Af öðru er það að frétta að Hrafnhildi tamningakonu tókst að hrekkja mig eftirminnilega í dag en þegar hún hafði skemmt sér yfir því var tekin ákvörðun um að fara með Geisla í alvöru reiðtúr á morgunn. Strákurinn virðist með afbrigðum rólegur og taugasterkur
Athugasemdir
Vesturbæjarlaugarvogin er ekki sú eina sem rulgast við flugeldana á áramótum skal ég þér segja. Vigtin mín hefur undantekningalítið farið að sýna tölur sem engan veginn passa eftir hver einustu áramót og hefur ekki jafnað sig fyrr en löngu síðar, oft ekki fyrr en eftir vorjafndægur
. Þess vegna hef ég ekkert truflað hana á árinu 2008, ætla bara að lofa henni að jafna sig almennilega. Já, og ferðu með ráðherrunum í sturtu? Eða eru það kannski umræddar "ráðfrúr"? Eða "ráðsetur"? Jæja ekki fæst ég um það hverjir fara saman í sturtu þarna vestra
Vona að draumur þinn um 007 stúlkuna eigi eftir að rætast einn daginn, held reyndar að samkeppnin sé dálítið hörð án þess ég sé að gera lítið úr þér, enda dytti mér það ekki í hug 
Svo tamningakonan er sennilega hrekkjótari en hesturinn. Er hann norðlenskrar ættar? Við erum nefnilega svo rólegir og taugasterkir þaðan
Best að hætta bulli að sinni.
Spaðinn (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 16:52
Ja, þú veist það eru sko útisturtur í Vesturbæjarlauginni þar sem maður spúlar sig á skýlunni eða bikiniunu, allt eftir fatasmekk hvers og eins. Þannig að ráðherrar eða frúr... ekki málið.
Hehe hesturinn er sko úr mínu gamla góða kjördæmi, Vesturlandi, en að vísu undan Glampa frá Þóreyjarnúpi.... hehe
Erna Bjarnadóttir, 10.1.2008 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.