Ég er með ofbirtu í augunum...

...eftir blossana í myndavélunum áðan. Það verður gaman þegar vinnufélagarnir fara að raða myndum af mér í fjölskyldualbúmin, ég í rauða sparidressinu en í þetta sinn var það ekki Brynhildur sem sá um lagninguna Grin.

Annars er bara allt fínt, árið ætlar að byrja vel hjá mér og þeim vinum mínum sem ég hef frétt af. Ég er komin á kaf í bissness, seldi hnakkinn á fyrsta degi ársins. Ekkert smá ánægð með það. Svo uppgötvaði einn vina minna að hann er spaði og fór beint út að aka, ætli hann verði ekki kominn á fast með kvöldinu. Annar heldur að hann sé jólasveinn, sé hann ekki næstu ellefuoghálfanmánuðinn Wink og sá þriðji seldi ónýta bílinn sinn fyrir meira en skilagjaldið af þeim er. Ekki ónýtt það!!

Svo verður kvöldið rólegt því erfingjarnir eru loksins búnir að snúa sólarhringnum í 360 gráður, annar er sofnaður og hinn verður vonandi farinn snemma í rúmið.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vonandi ertu laus við ofbirtuna úr augunum, kannast við þetta. Það er alltaf notaleg tilhugsun að vita til þess hvað maður er í mörgum fjölskyldualbúmum útá Rauða dressið og hvítu andlitsgæruna. Miklu fleiri konur sem dást að mér þannig en raunverulegum í gegnum tíðina, þó ég sé umræddur spaði en kom alveg ófastur heim úr akstrinum. (kannski ekki eins mikill spaði og ég hélt). Átt þú ekki mynd af þér í gallanum? Mætti alveg skella henni inn

Spaðinn (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 09:50

2 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Jú er heldur að lagast í augunum . Jú konurnar dást líka að mér í gallanum, er sko Stúfur en ekki Stubba . Redda mynd ekki málið, kannske verður jólasveinabúningur málið í ónefndum netsjoppum fyrir næstu jól

Erna Bjarnadóttir, 4.1.2008 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband