31.12.2007 | 13:25
Munið að nota spariundirfötin...
...og kristalsglösin ykkar þegar ykkur langar til á nýja árinu. Stundum flakka um netið milli "netfanganna" skilaboð á þessa leið. Skilaboðin eru þessi: Leyfum okkur að njóta þess besta sem við eigum, hvort sem það eru falleg glös eða stundir með vinum og nánustu ættingjum. Í mínum huga er ekki til það sem sumir kalla að hafa það of gott. Ef eitthvað gott bankar á hjá manni á bara að bjóða því í bæinni.
Ég hef annars ekki sérstaklega fyrir venju að strengja áramótaheit. Í þetta sinn stefni ég þó á að láta gamlan draum rætast (stelpur í málfundafélaginu það er ekki þessi með flottu hestana ...) en til að enginn steli hugmyndinni verður meira ekki látið uppi að sinni. Svo er á áætlun að fara í hestaferð, minnka kaffidrykkju, komast á topp 5000 í bloggheimum, og endurnýja kristalsglösin og spariundirfötin eftir þörfum
Gleðilegt ár kæru vinir og ættingjar, vona að nýja árið færi ykkur gæfu og gleði.
Athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár ! Inga og Valgeir.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 1.1.2008 kl. 01:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.